Prentmet Oddi ehf. hefur tekið við framleiðslu á stimplum Stimplagerðarinnar. Stimplagerðin hefur verið í rekstri síðan 1955, er elsta stimplagerð landsins og leiðandi í sölu stimpla. Hjónin Óðinn Geirsson og Aðalheiður Maack keyptu fyrirtækið árið 1976 af stofnandanum, Bergi Thorberg prentara, og hafa því rekið það í um 45 ár.

Prentmet og nú Prentmet Oddi var stofnað árið 1992 og rekið af þeim hjónum Guðmundi Ragnari Guðmundssyni og Ingibjörgu Steinunni Ingjaldsdóttir með hraða, gæði og persónulega þjónustu að leiðarljósi. Fyrirtækið býður upp á heildarlausnir í prentun. Prentar umbúðir, bækur, allt almennt prentverk, límmiða og gerir stimpla.

Viðskiptavinir Stimplagerðarinnar eru beðnir að hafa samband í síma 5 600 600 eða stimplar@prentmetoddi.is

Fáðu tilboð í stimpla hér