Prentmet Oddi og Bara tala eru komin í samstarf. Prentmet Oddi sér um allt prentað kynningarefni fyrir Bara tala og erlendir starfsmenn Prentmet Odda fá afnot af appinu Bara tala og styrkja sig þannig í íslenskunni.

Bara tala er gagnvirk, grípandi, og skemmtileg leið til að læra íslensku. Appið er stafrænn íslenskukennari sem byggir á gervigreind og íslenskri máltækni.

Með lausninni geta notendur spreytt sig á samtölum í öruggu umhverfi. Forritið hlustar á notendur tala, æfir þá í framburði og veitir endurgjöf í rauntíma. Með Bara tala geta þeir æft íslensku hvar og hvenær sem er.

Jón Gunnar, framkvæmdastjóri og stofnandi Bara tala, segir: ,,Við erum spennt að hefja samstarf við Prentmet Odda, þar sem við sameinum prentað kynningarefni og stafrænu lausnina Bara tala. Fyrsta verkefnið er að útbúa efni fyrir erlent starfsfólk leikskóla og heimahjúkrunar. Lausnin er þegar komin til 10 sveitarfélaga og yfir 70 vinnustaða. Með prentuðu efni aukum við vitundina um mikilvægi þess að tala íslensku og undirstrikum að það að tala íslensku með hreim er tákn um hugrekki!“