Dagatal Prentmet Odda 2021 er komið út. Að þessu sinni er þemað íslenskur iðnaður. Fyrir hvern mánuð er ein atvinnugrein og myndirnar sýna styrk íslensks atvinnulífs og fókusinn er á fólkið sem þar vinnur. Ljósmyndarinn Guðmundur Kárason sá um að mynda og það sem einkennir myndirnar er mikið, stollt, samstaða og hlýja. Öll íslensk fyrirtæki, stofnanir og einstaklingar eiga kost á því að fá eitt frítt eintak og greiða fyrir póstburðargjaldið.
Allir geta keypt það gegn vægu verði og fengið sent heim í pósti.
Vinsamlegast hafið samband við sölumenn okkar í sala@prentmetoddi.is eða í síma 5 600 600 varðandi dagatölin, ef þú ert með fyrirtæki og óskar eftir fríu dagatali eða viðskiptavinur sem óskar eftir fleiru en einu dagatali.