Askja með fjögurra horna límingu er hönnun þar sem horn öskjunnar eru límd saman á bæði loki og botni. Þetta tryggir stöðugleika og styrk öskjunnar. Hún er vinsæl vegna þess að hún sameinar hagnýta eiginleika og fjölhæfni í notkun.
Askja með fjögurra horna límingu er sterkbyggð, endingargóð og hentar vel fyrir vörur sem þurfa traustar en glæsilegar umbúðir. Þetta gerir hana hagkvæma og áhrifaríka lausn fyrir bæði smásölu og iðnaðarumbúðir. Þessar öskjur eru algengar fyrir matvörur, snyrtivörur, skartgripi og ýmsan gjafavarning.

ÁBYRG PRENTUN FYRIR BETRA UMHVERFI
Við hjá Prentmet Odda leggjum mikla áherslu á umhverfisábyrgð og stöðuga þróun í sjálfbærri prentframleiðslu. Með okkar Svansvottuðu framleiðsluferlum tryggjum við að vörur okkar uppfylli ströngustu kröfur um lágmörkun á skaðlegum efnum og minni sóun.
Oddi fékk Svansvottun 2009, Prentmet 2011 og útibú Prentmets 2012. Svansvottun Prentmet Odda þýðir að fyrirtækið er í fremstu röð prentsmiðja hvað varðar lágmörkun neikvæðra áhrifa á umhverfi og heilsu.
