Bolluöskjur eru hannaðar til að pakka kringlóttu eða hálfkúptu bakkelsi, kökum og öðrum viðkvæmum vörum. Þær veita vörn gegn höggum og ryki, halda vörunum í réttri lögun. Oftast er á þeim gluggi með plasti eða opið svæði til að sýna innihaldið. Bolluöskjur eru bæði verndandi og snyrtilegar, oft notaðar fyrir lúxus- eða gjafavörur.

ÁBYRG PRENTUN FYRIR BETRA UMHVERFI
Við hjá Prentmet Odda leggjum mikla áherslu á umhverfisábyrgð og stöðuga þróun í sjálfbærri prentframleiðslu. Með okkar Svansvottuðu framleiðsluferlum tryggjum við að vörur okkar uppfylli ströngustu kröfur um lágmörkun á skaðlegum efnum og minni sóun.
Oddi fékk Svansvottun 2009, Prentmet 2011 og útibú Prentmets 2012. Svansvottun Prentmet Odda þýðir að fyrirtækið er í fremstu röð prentsmiðja hvað varðar lágmörkun neikvæðra áhrifa á umhverfi og heilsu.
