Flöskutöskur eru hagnýtar og hafa margvíslegan tilgang. Þær vernda flöskur gegn höggum og skemmdum, gera flutning auðveldari með þægilegum handföngum og eru umhverfisvænar. Þær eru einnig vinsælar sem glæsilegar gjafaumbúðir og notaðar af fyrirtækjum til markaðssetningar með lógóum og grafík.

ÁBYRG PRENTUN FYRIR BETRA UMHVERFI
Við hjá Prentmet Odda leggjum mikla áherslu á umhverfisábyrgð og stöðuga þróun í sjálfbærri prentframleiðslu. Með okkar Svansvottuðu framleiðsluferlum tryggjum við að vörur okkar uppfylli ströngustu kröfur um lágmörkun á skaðlegum efnum og minni sóun.
Oddi fékk Svansvottun 2009, Prentmet 2011 og útibú Prentmets 2012. Svansvottun Prentmet Odda þýðir að fyrirtækið er í fremstu röð prentsmiðja hvað varðar lágmörkun neikvæðra áhrifa á umhverfi og heilsu.
