Hjá Prentmeti Odda er hægt að prenta út grunnteikningar í öllum algengustu stærðunum. Algengustu teikningastærðirnar er A3, A2, og A1, en að sjálfsögðu getum við prentað í hvaða stærð sem er.
Einnig bjóðum við uppá plöstun á teikningum sem hentar einstaklega vel þegar t.d. byggingar eru ófokheldar og veðuröflin eru að stríða verkafólki.
CAD pappír
80-90 gr.
Plöstun

ÁBYRG PRENTUN FYRIR BETRA UMHVERFI
Við hjá Prentmet Odda leggjum mikla áherslu á umhverfisábyrgð og stöðuga þróun í sjálfbærri prentframleiðslu. Með okkar Svansvottuðu framleiðsluferlum tryggjum við að vörur okkar uppfylli ströngustu kröfur um lágmörkun á skaðlegum efnum og minni sóun.
Oddi fékk Svansvottun 2009, Prentmet 2011 og útibú Prentmets 2012. Svansvottun Prentmet Odda þýðir að fyrirtækið er í fremstu röð prentsmiðja hvað varðar lágmörkun neikvæðra áhrifa á umhverfi og heilsu.