Gæðamarkmið og stöðugar umbætur í framleiðslu
Prentmet Oddi leggur metnað sinn í að afhenda vörur af hæstu gæðum hverju sinni. Gæðastefna okkar er grundvöllur allrar starfsemi og miðar að stöðugum umbótum, ánægju viðskiptavina og faglegu verklagi í öllum þáttum framleiðslu og þjónustu.
Prentmet Odda ehf. ætlar að viðhalda gæðakerfinu með rýni stjórnenda, innri úttektum og eftirliti, úrbótum og forvörnum.
Rýni stjórnenda skal framkvæma í þeim tilgangi að fá víðtækt mat á stöðu skjala gæðakerfisins og til að fá fullvissu um að skjöl gæðakerfisins og skipulag þess sé í samræmi við kröfur fyrirtækisins. Innri úttektir og eftirlit á gæðakerfinu skal framkvæma samkvæmt verklagsreglu nr. 10 til að meta virkni þess og sannprófa að sá árangur náist sem stefnt er að. Starfsfólk, óháð þeim þætti starfseminnar eða þeim starfsmanni sem ber ábyrgð á honum, skal framkvæma úttektina.
Þessi stefna er hluti af innra gæðakerfi Prentmet Odda ehf. og er endurskoðuð reglulega. Síðast uppfært janúar 2025. Fyrirspurnir má senda á sala@prentmetoddi.is eða hringja í 5 600 600.