
Hjónin Ingibjörg Steinunn og Guðmundur Ragnar, eigendur Prentmet Odda, eru stolt og þakklát fyrir að hafa hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026. Jafnvægisvogin er mikilvægt hreyfiaflsverkefni á vegum Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA), sem hefur það að markmiði að stuðla að jafnari kynjahlutföllum í æðstu stjórnunarstöðum íslensks atvinnulífs og samfélagsins.


















