Í Hörpunni 30.10´24 tókum við fyrir hönd Prentmet Odda á móti viðurkenningu frá Creditinfo sem framúrskarandi fyrirtælki.

Aðeins 2% fyrirtækja á Íslandi standast þær ströngu kröfur sem gerðar eru til Framúrskarandi fyrirtækja. Vottun Framúrskarandi fyrirtækja er vottun um vönduð vinnubrögð og er mikilvægur þáttur í markaðssókn þeirra sem vilja efla traust viðskiptavina og samstarfsaðila. Allt er þetta árangur sem við höfum náð með okkar frábæra samstarfsfólki, þrotlausri vinnu og eljusemi og frábæra þjónustu við okkar góðu viðskiptavini.
Á myndinni eru stolltir eigendur þau hjónin Guðmundur Ragnar Guðmundsson og Ingibjörg Steinunn Ingjaldsdóttir