Innkaupastefna Prentmet Odda miðar að því að tryggja ábyrg og hagkvæm innkaup sem styðja við starfsemi fyrirtækisins og samfélagslega ábyrgð þess.
Birgjar eru valdir á grundvelli gæða, verðs, afhendingarhæfni og umhverfisábyrgðar. Fyrirtækið metur birgja reglulega og gerir kröfur um upplýsingagjöf um efnasamsetningu, uppruna og framleiðsluferla. Forgangsbirgjar eru þeir sem hafa hlotið viðurkenndar umhverfisvottanir eins og Svansvottun, FSC-vottun eða ISO 14001.
Öll hráefni sem notuð eru í framleiðslu skulu uppfylla kröfur Svansvottunar. Þetta nær til pappírs, bleks, líms, efna og annarra aðfanga.
Innkaup eru skipulögð og framkvæmd af innkaupastjóra í samvinnu við framleiðslustjóra. Stærri innkaup eru borin undir framkvæmdastjóra. Samningar við birgja eru endurskoðaðir árlega. Innkaupastefna er kynnt öllum starfsmönnum sem koma að innkaupum og er hluti af þjálfun nýrra starfsmanna.
Innkaup eru skráð og rakin í innkaupakerfi fyrirtækisins. Frávik frá stefnu eru tilkynnt og úrbætur gerðar. Stefnan er endurskoðuð árlega eða oftar ef þörf krefur.
Þessi stefna er hluti af innra gæðakerfi Prentmet Odda ehf. og er endurskoðuð reglulega. Síðast uppfært janúar 2025. Fyrirspurnir má senda á sala@prentmetoddi.is eða hringja í 5 600 600.