
Út er komin bókin Íslensk bókavinnsla sem Prentmet Oddi gefur út. Bókin fjallar um bókagerð og prentun sem órjúfanlegan hluta íslensks menningararfs og mikilvægi þess að viðhalda og efla bókagerð á Íslandi. Prentmet Oddi hefur með öflugum vélakosti og reyndu starfsfólki skapað sér stöðu sem leiðandi aðili í bókaprentun á Íslandi. Fyrirtækið leggur áherslu á að þjóna íslenskum bókaútgefendum, menningarstofnunum og félagasamtökum með bókaprentun sem er sniðin að þörfum íslensks markaðar.

















