

SAGAN
Prentmet Oddi er rótgróið fjölskyldufyrirtæki í íslensku viðskiptalífi sem var stofnað árið 1992 af hjónunum Guðmundi Ragnari Guðmundssyni og Ingibjörgu Steinunni Ingjaldsdóttur sem eiga og reka félagið enn í dag. Félagið hét þá Prentmet ehf. og með framúrskarandi þjónustu samhliða yfirtökum, óx félagið hratt og um tveimur áratugum síðar var það orðið að næst stærstu prentsmiðju landsins. Árið 2019 stækkaði félagið svo enn meira þegar það yfirtók stærstu prentsmiðju landsins, Odda. Í kjölfarið tók félagið upp nafnið Prentmet Oddi ehf. og hefur síðan þá breikkað sig enn frekar með auknu vöruframboði og frekari yfirtökum.
Prentmet ehf. stofnað 1992 á Suðurlandsbraut 50 – tveir starfsmenn og forvinnsla
Prentmet fjárfestir í fyrstu offsetprentvélinni árið 1995 og yfirtekur í kjölfarið 12 fyrirtæki
Árið 2019 yfirtók Prentmet stærstu prentsmiðju landsins, Prentsmiðjuna Odda - Prentmet Oddi verður nýtt nafn félagsins
Um 70 reynslumiklir fagmenn starfa hjá félaginu í samtals 7.900 fm í Reykjavík, Selfossi og á Akureyri
Vegferðin
Höfuðstöðvar félagsins eru í 3.800 fermetra húsnæði á Lynghálsi 1 í Reykjavík sem er í eigu félagsins ásamt því að leigja 3.300 fermetra húsnæði á Fosshálsi 25. Sömuleiðis starfrækir félagið útibú á bæði Selfossi og Akureyri. Hjá félaginu starfa í heildina um 70 reynslumiklir fagmenn sem leggja sitt af mörkum til að veita framúrskarandi gæði og þjónustu.
Stofnað 1992
Reynslumiklir fagmenn
Vöxtur með sameiningu
SAGAN ÖLL
Við forstillum atvinnugreinina svo þú fáir hraðara og nákvæmara tilboð.