Bjóðum upp á hágæða límbönd frá Tesa í öllum stærðum og gerðum.
Bjóðum einnig upp á vandaðar Tesa límbandsbyssur.
Atriði sem þarf að hafa í huga til að velja rétt límband:
- Ertu að líma létta eða þunga kassa?
- Ef léttir, þá viltu líklega PP límband
- Ef þungir, þá viltu líklega PVC límband
- Best er að líma á kassana í a.m.k. 5°C hita svo límið tolli best á kössunum
- Ef verið er að líma í hitastigi sem er undir 5°C þarf að nota PVC límbönd
- Eftir að tekist hefur að líma límböndin á kassana er hægt að geyma kassana í frosti
- Viltu límbönd sem hægt er að endurvinna þótt þau séu límd á bylgjukassa þegar þau fara í endurvinnslu?
- Ef svo er, þá erum við með pappírslímbönd sem eru endurvinnanleg í slíkum tilfellum.
- Viltu áprentað límband?
- Ekkert mál, við getum látið prenta allt að 3 liti á límböndin og ef um stærri pantanir er að ræða þá 4 liti.
- Sendu okkur endilega prentskjal í Vector formi með pantone litanúmerum og við klárum málið!