Barnabókin Loðmar prentuð í Prentmet

18. nóvember, 2010

Prentmet hefur prentað barnabókina Loðmar sem SALKA forlag gefur út. Höfundarnir, Embla Vigfúsdóttir og Auður Ösp Guðmundsdóttir, sáu bæði um texta og myndir, en þær hafa nýlokið námi í Listaháskóla Íslands og fengu styrk frá Bókmenntasjóði og Rannís til að vinna bókina.

Bókina prýðir orðagnótt ásamt bráðskemmtilegum myndskreytingum og hönnun. Hér er lögð rækt við íslenska tungu á nýstárlegan og spennandi hátt.

Bókin er innbundin, 34 bls. að lengd og unnin í Prentmeti. Katla Rós Völudóttir og Ragnar Már Nikulásson sáu um grafíska uppsetningu og umbrot.

Loðmar er nokkuð sérstakur náungi sem býr á opnu eitt. Hingað til hefur hann ekki hætt sér yfir á næstu opnur en honum vex ásmegin þegar lesandi opnar bókina og er til í að kanna hana með honum. Á hverri opnu hittir Loðmar nýja bókbúa; þar á meðal má nefna Lúpa, hjárænulega sundlaugarvörðinn, mannvitsbrekkuna Gnótt og síðast en ekki síst Gímaldið ógurlega.

Þátturinn Ísland í dag heimsótti Sölku forlag á útgáfuteiti bókarinnar í vikunni á degi íslenskrar tungu 16. nóvember.