![Offsetprentun Hér má sjá starfsmann við offsetprentun](https://prentmetoddi.is/wp-content/uploads/2021/05/DSC02455-300x225.jpg)
Offsetprentun
Með fyrsta flokks vélbúnaði og reynslumiklu starfsfólki býður Prentmet Odda hágæða prentun á fjölbreyttu prentverki, t.d. listaverkabókum, umbúðum, bæklingum, möppum og nafnspjöldum. Offsetprentun hentar einnig vel fyrir allar gerðir kynningarefnis og markpósts.
![Stafræn prentun Nánast öll þjónusta í stafrænni prentun](https://prentmetoddi.is/wp-content/uploads/2021/03/Richo-9200_Low-8-300x225.jpg)
Stafræn prentun
Hægt er að fá nánast alla prentþjónustu með stafrænni prentun. Stafræn tækni gefur ekki aðeins kost á skjótri afgreiðslu þegar um smærri upplög er að ræða, heldur einnig prentun risaplakata og auglýsingaborða af nánast ótakmarkaðri stærð.
![Prentun á umbúðum Prentmet Oddi framleiðir umbúðir fyrir fjölda íslenskra og erlendra fyrirtækja sem dreifa vöru sinni á alþjóðamarkað](https://prentmetoddi.is/wp-content/uploads/2021/05/IMG_7166-300x200.jpg)
Umbúðir
Prentmet Oddi framleiðir umbúðir fyrir fjölda íslenskra og erlendra fyrirtækja sem dreifa vöru sinni á alþjóðamarkað, s.s. fyrirtæki í sjávarútvegi, matvæla- og sælgætisframleiðslu, lyfjaiðnaði o.fl. Prentmet Oddi mætir ýtrustu kröfum á sviði umbúðaprentunar og veitir ráðgjöf við vöruþróun, formhönnun, prentun, hráefni og allt annað er varðar umbúðir. Prentmet býður upp á stuttan afgreiðslutíma sem þýtt getur minna lagerhald fyrir viðskiptavini.