Í boði var gos, kakó, kaffi og piparkökur og súkkulaðistykki frá Nóa Síríus. Tveir stórskemmtilegir jólasveinar mættu á ballið, bræðurnir Hurðaskellir og Kertasníkir. Þeir skemmtu börnum og fullorðnum og virkjuðu fullorðna fólkið til að taka þátt í fjörinu með sér með gítarsóló og söng. Það var fjölmennt á ballinu sungið og dansað, rokkað og rólað. Börnin fengu síðan vænan nammipoka frá þeim bræðrum. Þetta var í fjórðja sinn sem jólaball er haldið í Prentmeti og var það afskaplega vel lukkað í alla staði. Allt ballið var tekið upp af Tryggva Rúnarssyni starfsmanni í Prentmet og býðst fólki diskur til sölu hjá honum.