Prentmet Oddi hefur keypt rekstur Ásprents Stíls og hyggst endurvekja rekstur þess í samstarfi við KEA. Prentmet Oddi hyggst efla límmiðaprentun sem og stafræna prentun Ásprents Stíls og verður tækjakostur starfseminnar efldur í því samhengi. Boðið verður upp á öfluga alhliða prentþjónustu þar sem persónuleg þjónusta verður í fyrirrúmi. Prentmet Oddi þekkir vel til rekstrar prentsmiðja utan höfuðborgarsvæðisins en félagið hefur um langt skeið rekið starfsstöðvar bæði á Akranesi og Selfossi. Gunnhildur Helgadóttir  hefur tekið til starfa sem útibústjóri. Einnig munu fimm aðrir starfsmenn Ásprent Stíls starfa hjá útibúinu á Akureyri.

Ásprent Stíll er rótgróin prentsmiðja stofnuð árið 1975 af Árni Sverrissyni en rekstur prentsmiðjunnar má þó rekja allt til ársins 1901. Prentsmiðjan hefur því þjónustað íbúa og atvinnulíf á Norðurlandi svo áratugum skiptir og mun gera það áfram.

Eigendur Prentmet Odda, hjónin Guðmundur Ragnar Guðmundsson og Ingibjörg Steinunn Ingjaldsdóttir eru full tilhlökkunar að taka við rekstrinum. „Við erum spennt að takast á við þetta verkefni en við höfum sterkar taugar til Akureyrar enda kynntumst við hjónin þar í skólaferðalagi fyrir rétt rúmum 30 árum.“ Vöruúrval verður eflt og kjörorð Prentmet Odda, hraði, gæði og persónuleg þjónusta verða höfð að leiðarljósi í starfseminni. Þau segja það forsendu þess að að ráðast í þetta verkefni og til að tryggja umsvif fyrirtækisins á Akureyri að eiga gott samstarf við KEA um endurreisn rekstrarins, m.a. með viðskiptasamningum um prentun.

Prentmet var stofnað af þeim hjónum árið 1992.

Árið 2019 keypti Prentmet rekstur Prentsmiðjunnar Odda og heitir fyrirtækið nú Prentmet Oddi.

Nánari upplýsingar veita eigendur:

Guðmundur Ragnar Guðmundsson, s. 8560 600 / grg@prentmetoddi.is og

Ingibjörg Steinunn Ingjaldsdóttir s. 8560601isi@prentmetoddi.is