Prentmet hefur fest kaup á Prentsmiðjunni Odda. Nafn sameinaðs félags verður Prentmet Oddi með aðsetur að Lynghálsi 1 og Höfðabakka 7 fyrst um sinn. Hjá sameinuðu félagi starfa um 100 manns.

Íslenskur prentiðnaður er í harðri alþjóðlegri samkeppni þar sem samkeppnishæfni innlendrar framleiðslu hefur beðið hnekki, m.a. vegna gengis- og launaþróunar. Sameinað fyrirtæki mun snúa vörn í sókn til að tryggja framleiðslu á prentverki á Íslandi til lengri tíma. Með kaupunum verður til sterkt fyrirtæki sem býður upp á heildarlausnir í prentverki og fyrsta flokks þjónustu, byggt á áratuga reynslu og þekkingu starfsfólks.

Prentmet Oddi er stærsta fyrirtæki landsins í vinnslu umbúða og eina fyrirtækið sem fullvinnur harðspjaldabækur. Á næstu misserum verður unnið að því að styrkja tækjakost fyrirtækisins enn frekar til að bæta þjónustu.

Fyrirtækið er Svansvottað og er í fremstu röð hvað varðar lágmörkun neikvæðra  áhrifa á umhverfi og heilsu. Stefnt er að því að vera leiðandi í umhverfis- og loftslagsmálum og halda áfram að stuðla að sjálfbærni og skógrækt.

Prentsmiðjan Oddi var stofnuð 9. október 1943 af Baldri Eyþórssyni, Finnboga Rúti Valdimarssyni, Björgvini Benediktssyni og Ellert Ág. Magnússyni. Prentmet var stofnað 4. apríl 1992 af hjónunum Guðmundi Ragnari Guðmundssyni og Ingibjörgu Steinunni Ingjaldsdóttir sem eiga og reka sameinað fyrirtæki.

Seljendur óska nýjum eigendum velfarnaður og munu leggja sitt af mörkum til að sameinuð fyrirtæki styrki stöðu sína enn frekar á markaði.

Nánari upplýsingar veita eigendur:
Guðmundur Ragnar Guðmundsson, s. 856 0600 / gummi@prentmet.is
Ingibjörg Steinunn Ingjaldsdóttir s. 856 0601/ ingasteina@prentmet.is