Prentmet hefur gengið frá samningi við Nýherja um kaup á Heidelberg Speedmaster SM-52 prentvél af fullkomnustu gerð og Heidelberg Stahlfolder KD-78 brotvél. Einnig gekk Prentmet frá kaupum á fræsara af gerðinni BB3002 frá C.p.bourg.

Heidelberg Speedmaster SM-52 prentvélin er öflugusta og fullkomnasta prentvélin í sínum stærðarflokki. Hún er 5 lita og með sérstakan lakkbúnað frá Laco samstarfsaðila Heidelberg. LACO SP 52 lakkbúnaður og Graphiset 1 AC, IR-þurrkari gefa möguleika á að vatnslakka í vélinni. Þetta er mjög handhægur búnaður sem settur er aftast í vélina í stað tölusetningarinnar. Lakkbúnaðurinn er hefðbundið 3 valsa kerfi. Þurrkarinn getur einning nýst í venjulega prentun og flýtir þá fyrir þurrktíma verksins.

Prentvélin er ríkulega útbúin og þar má m.a. nefna:

· CP2000 stjórnborð, það fullkomnasta á markaðnum, mjög notendavænt og einfalt í notkun.
· Autoplate, plötuísetning.
· Útskiptanlegir Transfer + jökkar sem eru sérstaklega farfa fráhrindandi.
· Öflugt Alcolor Vario vatnskerfi sem m.a. kemur í veg fyrir óhreinindi safnist fyrir á prentplötunum.
· “Temperature control” hitastjórunarbúnaður fyrir valsa vélarinnar.
· Sjálfvirkur þvottur á völsum og sílenderum.
· Vélin getur tekið frá þynnsta pappír 0,03mm upp í karton í þykktinni 0,6mm.
· Non-stop frálag og ílag fyrir stöðuga keyrslu þegar þörf er á í stærri upplögum.
· Vélin er búin Grafix duftsprautu og StaticStar afrafmögnunarbúnaði.
· Preset link tengimöguleikar við forvinnsludeildina.
· Tölusetningar og rifgötunarbúnað.

Heidelberg Stahlfolder KD-78/4 KTL er ríkulega útbúin brotvél.

Fjórar kassettur, tveggja hnífa krossbrotsunit með hliðarkassettu. Auk þess

er eitt laust hnífa unit VFZ 52H sem 3 hnífur. Vélinni er stjórnað frá Snertiskjá sem er samskonar og á Heidelberg prentvélunum, sama viðmót, einfalt og þægilegt. Frálagið er það allra nýjasta frá Heidelberg, TSH twinstacker, sem meðal annars skilar frá sér örkunum í töldum bunkum á tveim hæðum.

Fræsarinn B3002 frá C.p.bourg er öflugur eins klamma fræsari. Hann er sjálfvirkur, mjög einfaldur og þægilegur í notkun. Hann fræsir og límir allt að 600 bækur á klukkustund, frá 2 blöðum upp í 60 mm þykkar bækur. Öllu er stjórnað frá 11″ grafískum snertiskjá, kápustöð fellir allt að 6 fellingar og getur einnig gert kápur með innábroti.