Þann 16. september er Dagur umhverfisins og þá hefst í annað sinn landsátak í söfnun birkifræs. Skógræktin og Landgræðslan hafa tekið höndum saman ásamt Prentmet Odda og óskað eftir
stuðningi landsmanna við að breiða út birkiskóga landsins. Í fyrra var safnað umtalsverðu magni af birkifræi í öskjur sem voru hannaðar, framleiddar og gefnar af Prentmet Odda. Birkifræinu
var dreift haustið 2020 og síðastliðið vor var afganginum dreift á valin beitarfriðuð svæði.

Vertu með og skelltu þér í birkimó! 🌱