Það má taka það fram að IBT býður þjálfun með það markmið að auka afköst fyrirtækja og einstaklinga.

Gunnar fjallaði á skemmtilegan hátt um það hvernig viðhorf okkar spila lykilhlutverkið í hversu góðum árangri við náum í því sem við tökum okkur fyrir hendur:

Viðhorf til verkefna

Viðhorf til náms og nýjunga

Viðhorf til vinnufélaga

Viðhorf til…….það má lengi telja!

Hvað drífur okkur áfram, hvað fær okkur til að vakna á morgnana? Hvernig virkjum við enn frekar kraftinn sem býr í okkur?

Það skiptir miklu máli að skipuleggja sig vel, forgangsraða verkefnum og ganga í þau strax. Við verðum oft fyrir miklum truflunum í vinnunni sem hindra okkur í að ná markmiðum okkar. Gunnar sýndi okkur góðar leiðir til þess að ná meiri afköstum út úr vinnudeginum. Fyrirlesturinn var mjög áhugaverður og starfsf’ólk mjög virkt í að taka þátt í umræðum.