Við bjóðum upp á prentun á bréfsefnum á Svansvottaðan skrifpappír sem er 90 – 120 gr að þykkt og hentar vel í alla skrifstofuprentara. Algengasta stærðin á bréfsefnum er A4, 210×297 mm, einnig letter stærð, 216×279 mm.
Óhúðaður skrifpappír
90-120 gr.

ÁBYRG PRENTUN FYRIR BETRA UMHVERFI
Við hjá Prentmet Odda leggjum mikla áherslu á umhverfisábyrgð og stöðuga þróun í sjálfbærri prentframleiðslu. Með okkar Svansvottuðu framleiðsluferlum tryggjum við að vörur okkar uppfylli ströngustu kröfur um lágmörkun á skaðlegum efnum og minni sóun.
Oddi fékk Svansvottun 2009, Prentmet 2011 og útibú Prentmets 2012. Svansvottun Prentmet Odda þýðir að fyrirtækið er í fremstu röð prentsmiðja hvað varðar lágmörkun neikvæðra áhrifa á umhverfi og heilsu.