Ætlar þú að gefa út bók og vantar þig aðstoð?
Við hér í Prentmeti Odda státum af úrvals fagfólki, sem er sérhæft, þjálfað og menntað í hönnun, umbroti, prentun og bókbandi á bókinni þinni. Bókaprentun er vandmeðfarið ferli þar sem huga þarf að hagkvæmni og fallegu og sölulegu útliti. Við kappkostum að veita þér bestu þjónustu og leiðsögn og að skila þér góðum bókum. Meðal verkefna sem hafa verið unnin hjá okkur eru listaverkabækur, ævisögur, fræðibækur, skáldsögur, ljóðabækur, dagbækur og fleira. Stolt okkar eru listaverkabækurnar sem við höfum prentað, en þær krefjast bæði hágæða prentunar og fallegs og vel unnins bókbands.
Bókavinnsla okkar gefur mikla möguleika. Við bjóðum alhliða bókavinnslu í fullkominni framleiðslulínu. Hvort sem það eru kiljur eða harðspjaldabækur, litlar eða stórar bækur, þá leysum verkið vel af hendi. Við bjóðum einnig frumlega unnar kápur með ýmiskonar lakkáferð, hlutalökkun, upphleypingu, þrykkingu, gyllingu og stönsun. Við höfum jafnan mikið úrval af pappír og bókbandsefnum.
Viðskiptastjórar okkar aðstoða þig fúslega við að finna réttu lausnina fyrir bókina þína.
Hagnýtar upplýsingar
Afgreiðslutími
Leitið upplýsinga
Prentun
Offset prentun
Stafræn prentun
Algengur pappír
100-170gr. Satin
100-170gr. Zigler
100-170gr. Munken
Algengar stærðir
Crown (12,4×18,2cm)
Tvöf. Crown (18,4×24,5cm)
Demy (13,7×21,1cm)
Din A5 (14,8×21,0cm)
Royal (15,3x23cm)
Super Royal (17x24cm)
A4 (21×29,7cm)
A5 (14,8x21cm)
Útfærslur
Harðspjaldakápa klædd bókbandsefni
Harðspjaldakápa klædd álíming
Kilja
Saumaðar bækur
Fræstar bækur
Gormabækur
Viðbótarþjónusta
Heillökkun
Hlutalökkun (Spot)
Laminering (Plöstun)
Upphleyping
Gylling
Þrykking