Nú hafa allir skólar landsins fengið í hendurnar litabókina um Ýmu tröllastelpu ,,Ég vil fá að vera ég sjálf“ sem er ætluð öllum 6 ára börnum á Íslandi. Olweusarverkefnið gegn einelti hefur slegist í för með Prentmeti og Regnbogabörnum. Bókin er gjöf frá Prentmeti og höfundur bókarinnar er Ingibjörg Steinunn Ingjaldsdóttir annar eigandi og starfandi stjórnarformaður Prentmets. Tilgangurinnn er fyrst og fremst að vekja alla til umhugsunar um hve mikilvægt það er að öll börn þori að vera – og geti verið – þau sjálf. Einnig að þau njóti sín í leik og starfi á eigin forsendum.

Við sem erum fullorðin berum mikla ábyrgð á velferð barnanna. Umræðan í bekknum um Ýmu vonum við að styrki kennara til að axla betur þá ábyrgð. Ýma er einskonar tákngervingur fyrir markmið og tilgang þeirra sem berjast gegn einelti. Hún fer aðeins fram á að vera hún sjálf, sama hvað aðrir segja um hana. Aðferðafræði Ýmuverkefnisins og Olweusarverkefnisins á erindi alstaðar í samfélaginu bæði í skólakerfinu öllu ásamt vinnustöðum. Okkur öllum þarf að líða vel í umhverfi okkar svo að við náum að blómstra og sýna sem mestan árangur í leik og starfi.