Við bjóðum upp á prentun á veggspjöldum í ýmsum stærðum. Algengar stærðir eru A3, A2, A1 og A0
Silkihúðaður pappír
170-200 gr.
Mattur pappír
170-200 gr.

ÁBYRG PRENTUN FYRIR BETRA UMHVERFI
Við hjá Prentmet Odda leggjum mikla áherslu á umhverfisábyrgð og stöðuga þróun í sjálfbærri prentframleiðslu. Með okkar Svansvottuðu framleiðsluferlum tryggjum við að vörur okkar uppfylli ströngustu kröfur um lágmörkun á skaðlegum efnum og minni sóun.
Oddi fékk Svansvottun 2009, Prentmet 2011 og útibú Prentmets 2012. Svansvottun Prentmet Odda þýðir að fyrirtækið er í fremstu röð prentsmiðja hvað varðar lágmörkun neikvæðra áhrifa á umhverfi og heilsu.